Heimsókn bæjarstjóra í Nesfisk
Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, heimsótti fyrirtækið Nesfisk á dögunum. Í heimsókninni kynnti bæjarstjóri sér starfsemi fyrirtækisins og ræddi við starfsfólk og stjórnendur um daglegan rekstur og stöðu sjávarútvegs í sveitarfélaginu.
Sérstök ánægja var með að geta óskað Nesfiski til hamingju með fjörutíu ára starfsafmæli fyrirtækisins á árinu. Nesfiskur hefur um árabil verið einn af burðarásum atvinnulífs á svæðinu og lagt sitt af mörkum til að byggja upp blómlegt samfélag í Suðurnesjabæ.
„Nesfiskur er eitt af okkar öflugustu fyrirtækjum og skiptir sköpum fyrir atvinnulíf í Suðurnesjabæ. Það var sérstaklega ánægjulegt að fá að samgleðjast fyrirtækinu með þessi merku tímamót, fjörutíu ár í rekstri. Framlag fyrirtækisins til samfélagsins er ómetanlegt,“ segir Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri.